Fara beint í aðalefni

Hestakerruleiga og öruggir hestaflutningar

Lagalegt

Leigusamningur – hestakerra HestaTaxa

Útgáfa 1 · gildir frá 26. september 2026

1. Aðilar

Leigusali er Draumabakki ehf., kt. 480126-2030, sem rekur HestaTaxa (hestataxi.is, sími 787 9050, hestataxi@hestataxi.is).

Leigutaki er sá einstaklingur eða lögaðili sem bókar kerruna, eins og hann er skráður í bókuninni.

Samningurinn stofnast þegar leigutaki staðfestir bókun og samþykkir samninginn. Bókunarstaðfesting, með bókunarnúmeri, leigutímabili, afhendingarstað og verði, er hluti af samningnum.

2. Hið leigða

Fjögurra hesta hestakerra í eigu leigusala ásamt þeim búnaði sem henni fylgir við afhendingu.

3. Leigutími, afhending og skil

3.1 Leigt er í heila daga. Leigutímabilið kemur fram í bókun.

3.2 Kerran er sótt og henni skilað á þeim stað sem leigutaki velur í bókun: í stæði nr. 50 í Herði í Mosfellsbæ eða í Þjóðólfshaga 31, 851 Hellu. Sótt- og skilatími er ákveðinn í samráði aðila.

3.3 Leigutaki skilar kerrunni á umsömdum stað og tíma, í sama ástandi og við afhendingu að frátöldu eðlilegu sliti, og hreinsaðri af taði og hálmi.

3.4 Sjái leigutaki fram á að geta ekki skilað kerrunni á umsömdum tíma skal hann hafa samband strax. Framlenging er háð því að kerran sé laus og greiðist samkvæmt gildandi dagsverði.

4. Verð og greiðsla

4.1 Leiguverð er 16.990 kr. fyrir hvern dag. Heildarverð kemur fram í bókun.

4.2 Greitt er með millifærslu á reikning leigusala fyrir afhendingu, með bókunarnúmer sem skýringu.

4.3 Leigusala er heimilt að afhenda kerruna ekki hafi greiðsla ekki borist.

5. Skyldur leigutaka

5.1 Leigutaki hefur gild ökuréttindi sem heimila akstur með kerrunni miðað við leyfða heildarþyngd hennar og notar dráttarbifreið sem má draga hana.

5.2 Leigutaki skoðar kerruna við afhendingu og tilkynnir leigusala strax um sýnilega galla eða skemmdir. Að öðrum kosti telst kerran afhent í góðu ástandi.

5.3 Leigutaki hleður kerruna ekki umfram leyfða heildarþyngd, flytur ekki fleiri en fjögur hross í henni og gengur tryggilega frá hrossum og farmi.

5.4 Leigutaki fer að umferðarlögum og lögum um velferð dýra og ber ábyrgð á sektum og gjöldum sem verða til vegna notkunar kerrunnar á leigutíma.

5.5 Leigutaka er óheimilt að framleigja eða lána kerruna öðrum nema með samþykki leigusala.

6. Tjón og tryggingar

6.1 Kerran er kaskótryggð hjá Sjóvá.

6.2 Leigutaki ber ábyrgð á tjóni sem verður á kerrunni á leigutímanum af hans völdum eða þeirra sem nota hana á hans vegum.

6.3 Valdi leigutaki tjóni sem fellur undir kaskótrygginguna greiðir hann sjálfsábyrgð tryggingarinnar, 90.000 kr.

6.4 Sé um minna tjón að ræða er kostnaður vegna þess gerður upp eftir samkomulagi aðila.

6.5 Falli tjón ekki undir kaskótrygginguna, til dæmis vegna ásetnings eða stórkostlegs gáleysis, ber leigutaki ábyrgð á því samkvæmt almennum reglum.

6.6 Leigutaki tilkynnir leigusala um tjón strax og eigi síðar en við skil. Verði umferðaróhapp skal fylla út tjónaskýrslu og kalla til lögreglu þegar það á við.

7. Hross og munir

Leigutaki ber ábyrgð á hrossum og munum sem fluttir eru í kerrunni. Leigusali ber ekki ábyrgð á tjóni á hrossum, fólki eða munum sem verður við notkun kerrunnar á leigutíma, nema það megi rekja til saknæmrar háttsemi leigusala eða galla á kerrunni sem leigusali vissi eða mátti vita um.

8. Breytingar og afbókun

Breytingar á bókun og afbókun eru gerðar í samráði við leigusala. Hafðu samband sem fyrst í síma 787 9050 eða á hestataxi@hestataxi.is.

9. Persónuupplýsingar

Upplýsingar leigutaka eru notaðar til að annast bókun og leigu, sbr. persónuverndarstefnu HestaTaxa.

10. Lög og ágreiningur

Um samninginn gilda íslensk lög. Rísi ágreiningur skulu aðilar leitast við að leysa hann í sátt.

HringjaLeigja kerru